Dagurinn runninn upp

laugardagur 28. apríl '07

Áætlaður fæðingardagur er í dag, þannig að við skulum vona að eitthvað fari að gerast. Ekki það að ég hafi átt á þessum degi í fyrri fæðingum samt. Það voru bara Marín (2 vikur fyrr) og Melkorka (2 dagar fyrr) sem komu áður en þeirra dagur rann upp en hin létu öll bíða eftir sér.... Helgi lengst eða um 2 vikur en hin svona 2- 5 daga...

Nú á dögunum hafði ég samband við eina góða konu hérna í sveitarfélaginu. Þessi kona er ljósmóðir og eftir síðustu tvær fæðingar hefur hún komið heim til okkar til að fylgjast með fyrstu vikuna, þar sem ég hef ekki viljað liggja inni á sjúkrahúsi eftir að eiga.

Eiginlega kom upp hugmynd eftir að hún Anna littla fæddist, en hennar fæðing gett nokkuð hratt fyrir, svo varla hefði tekið því að fara á Heilsustofnun Suðurnesja. Ég var þar bara í einhverja þrjá klukkutíma.

Þessi hugmynd átti nú samt ekkert að verða að veruleika þar sem ég var "hætt" og var ekkert á planinu að eiga fleiri börn.

Alla vega, þá fékk ég spurningu frá ljósunni, meira svona í gríni samt, hvers vegna ég hefði ekki bara hringt í hana og átt stúlkuna heima.

Það er sem sagt planið núna. Það er þó einn hængur á. Konan, sem heitir raunar Anna Rut, er að vinna þessa helgi og fær ekki "backup" til að leisa sig af, þar sem allir virðast vera að fara eitthvað eða hafa önnur plön.

Ég verð þá annað hvort að halda í mér fram yfir helgi eða fara á staðinn. Eiginlega það sem mér hefur allatf fundist leiðinlegast og erfiðast við fæðingar eldri barnanna er ferðalagið að heiman á fæðingardeildina.

Einhver veginn verður hver einasta hola í veginum djúpu gili og bílhræðslan mín, sem er nú nokkur bara undir venjulegum kringumstæðum, margfaldast. Maður stressast bara upp og allt stoppar, og svo þarf bara að bíða aftir að allt fari af stað á ný þegar á spítalan er komið... Ekkert gaman að því, skal ég segja þér.

Hvað sem því líður þá skal ég játa það hér og nú að ég er farin að finna fyrir smá verkjum.... ekkert alvarlegt samt.... Það er ekkert víst að neitt gerist fyrr en eftir 1 - 2 daga þessvegna... en þegar ég átti t.d. hann Stefán Andra, þá var ég búin að finna fyrir svona í alla vega fjóra daga áður en hann lét sjá sig...

Þetta er bara móðir náttúra að undirbúa sitt.... Við sjáum svo bara til hvort þetta gerist hérna heima eða einhverstaðar annarsstaðar...

Ég lofa því alla vega hér með að ég muni sjá til þess að diggir lesendur og aðrir forvitnir gestir fái fréttir við fyrsta tækifæri.... hvort sem það verði ég sem skrifa eða eiginmaðurinn. ;)


Athugasemdir -


Skrifa athugasemd -

Nafn:

Netfang (email):

Heimasíða (http://..):

Athugasemd:

Visual CAPTCHA+

Senda

Til baka