40 vikur + 2 dagar
mánudagur 30. apríl '07
Jæja, þá er kominn mánudagur 30. apríl og ekkert að gerast hérna.... Það þíðir líklegast það að ekki kemur þessi bumbubúi til með að fæðast í þessum mánuði.
Maí er reindar líka ágætis mánuður samt en ég á nú þegar eitt barn sem er fætt í maí og var þess vegna að vona að áætlunin myndi standast.
Kannski að maður reini að draga hana Marínu með mér út í göngutúr. Hún er annars hérna hjá okkur þessa dagana þar sem hún á ekki að mæta í skólan fyrr en næsta föstudag.
Athugasemdir -
Svo er bara að muna að senda manni SMS þegar barnið mætir á svæðið :) kv/Sigrún sem fylgist með úr fjarska
Þetta sagði :Sigrún Pálsdóttir klukkan 14:52:05 þann 2007-04-30