40 vikur + 5 dagar

fimmtudagur 3. maí '07

Fastir liðir eins og venjulega....

Frekar en fyrridaginn er ekkert að gerast annað en miklar hreyfingar á nóttunni eða í hvert skipti sem ég reini að leggja mig.

Ég minnist þess ekki að eldri krakkarnir hafi verið svona fjörug á þessu stigi meðgöngunnar. Pissublaðran notuð sem boxpúði, og bumban gengur í risa bylgjum.... og allt gert til að reka mömmu á fætur aftur...

Af örum í fjölskyldunni er það helst að frétta að hann Stefán Andri fór með henni Guðrúnu sinni í sveitina í gær, þannig að núna er hún Anna litla bara hálf einmana. Annars er hún samt voða róleg og góð þrátt fyrir allt... og vill helst bara kyssa mömmu sína allan daginn...


Athugasemdir -


Skrifa athugasemd -

Nafn:

Netfang (email):

Heimasíða (http://..):

Athugasemd:

Visual CAPTCHA+

Senda

Til baka